Skilmálar og persónuvernd

Skilmálar

Þjónusta Endurnæringar ehf. er háð eftirfarandi skilmálum. Þegar þú notar vefsíðuna eða kaupir þjónustu samþykkir þú þessa skilmála, vinsamlegast lestu vel yfir þá. Þú getur sent tölvupóst á [email protected] ef þú hefur spurningar um skilmálana. Endurnæring ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Endurnæring ehf. notar hugbúnað frá Kara Connect við veitingu fjarviðtala og finna má skilmála fjarviðtala í bókunarferli þeirra. Þjónustan er rekin af Endurnæringu ehf., kt. 410221-0200, Höfðinn (Heilsuklasinn/Heilsugæsla Höfða) Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík. Umhverfi fjarþjónustu er hýst af Köru Connect ehf. sem er vinnsluaðili gagna (sjá notkunarskilmála Köru Connect hér). Endurnæring ehf. er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna. Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á [email protected].

Notkunarskilmálar

Endurnæring ehf. veitir næringarmeðferðir á staðnum eða í gegnum netið á öruggan hátt. Fjarþjónustan er einungis ætluð einstaklingum 18 ára og eldri en staðarþjónustan býðst öllum sem það kjósa. Notandanum er gert grein fyrir því að með því að samþykkja þessa skilmála þá er hann að veita upplýst samþykki fyrir vinnslu á persónuupplýsingum.

Mæting í viðtal

Afbókanir

Geti skjólstæðingur ekki nýtt sér bókaðan viðtalstíma er mikilvægt að afboða hann með minnst 24 klst. fyrirvara. Forfallagjald er sem nemur 8000 kr. og áskilur Endurnæring ehf. sér rétt á innheimtu þess gjalds með innheimtuþjónustu Íslandsbanka. Hægt er að tilkynna afbókanir með því að senda póst á [email protected] eða hringja í s. 599-1600 (Móttaka Höfða). Jafnframt er hægt að færa bókaða tíma með Noona appinu, eða inni á noona.is. Athugið að Ekki er hægt að tilkynna forföll í gegnum hugbúnaðinn Kara Connect.

Ábyrgð þín

Þú berð ábyrgð á að muna eftir að mæta í viðtalstímann þinn til þess að forðast forfallagjald. Þú berð sömuleiðis ábyrgð á því að þú hafir næði á meðan þú ert í viðtalstíma hjá næringarfræðingnum þínum í gegnum myndfundabúnað og að netsamband þitt og tækjabúnaður sé nægilega góður.

Greiðslur og verð

Greiðslumáti

Greiðsla er innt af hendi eftir hvert viðtal í gegnum innheimtuþjónustu Íslandsbanka eða með millifærslu. Skjólstæðingur fær kvittun fyrir greiðslunni senda í tölvupósti eftir að greiðsla hefur verið framvkæmd. Endurnæring ehf hefur ekki aðgang að kortaupplýsingum kaupenda.

Hægt er að nálgast kvittun hjá Endurnæringu ehf. sem hægt er framvísa til stéttarfélaga vegna greiðsluþátttöku en sum stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til að sækja veitta þjónustu.

Verð

Viðtalstími (50mín) hjá næringarfræðing kostar alla jafna 18 þúsund kr. Sjá nánar. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru verð og upplýsingar um þjónustu birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Við áskiljum okkur rétt til verðbreytinga án fyrirvara.(Undantekning frá þessu er þegar þú hefur nú þegar hafið næringarmeðferð hjá Endurnæringu - Þá gildir það verð sem samið var um í upphafi meðferðar).

Stéttarfélög og styrkir til að sækja næringarráðgjöf

Endurnæring vekur athygli á því að nú niðurgreiða flest stéttarfélög viðtalstíma hjá næringarfræðingi gegn framvísun kvittunar. Endurnæring gefur út viðeigandi kvittanir sem framvísa má til stéttarfélaga. Nánari upplýsingar um slíkt veitir Endurnæring góðfúslega.

Rekstur heilbrigðisþjónustu

Endurnæring ehf er rekin með leyfi frá Embætti landlæknis. Allir veitendur heilbrigðisþjónustu hjá Endurnæring ehf eru með löggilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.

Trúnaður og þagnarskylda næringarfræðinga

Næringarfræðingur skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað, eða rökstudd ástæða sé til að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar. Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir næringarfræðing undan þagnarskyldu. Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem næringarfræðingi ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber næringarfræðingi skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við viðeigandi stjórnvöld. Um trúnaðar- og þagnarskyldu næringarfræðings gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

Persónuvernd

Persónugögn

Persónugögn eru gögn sem hægt er að tengja við einstaklinga. Endurnæring ehf. safnar og vinnur eftirfarandi persónugögn sem hægt er að tengja við þig:

  • Almennar upplýsingar:
    • Nafn
    • Tölvupóstur
    • Heimilisfang
    • Símanúmer
    • Kennitala
    • Upplýsingar um tengilið skjólstæðings ef við á (Nafn, sími, heimilisfang). T.d. forráðamaður eða maki
  • Heilbrigðisupplýsingar (sjúkraskrá):
    • Samkvæmt lögum um sjúkraskrá nr. 55/2009 skal heilbrigðisstarfsmaður sem fær sjúkling til meðferðar halda sjúkraskrá. Heilbrigðisupplýsingar eru upplýsingar sem verða til við meðferð sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns.
  • Greiðsluupplýsingar:
    • Endurnæring ehf. sér hvorki um, né geymir kortaupplýsingar hjá sér. Greiðslur fara fram í gegnum innheimtuþjónustu Íslandsbanka eða með beinni millifærslu.

Meðhöndlun á persónugögnum

Endurnæring ehf. notar persónugögn þín eingöngu í þeim tilgangi að efna samning við þig um veitingu næringarmeðferða og til að uppfylla lagaskyldu veitanda heilbrigðisþjónustu að halda sjúkraskrá um meðferðina.

Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr.55/2009 er óheimilt að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá nema með samþykki landlæknis. Aðrar upplýsingar sem við geymum um þig eru geymdar eins lengi og nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Einstaka upplýsingar geta verið geymdar lengur ef sérstakar reglur gilda t.d. skatta- eða bókhaldslög.

Endurnæring ehf notast við Köru til að safna og geyma persónugögn. Persónugreinanlegar upplýsingar, ásamt öðrum gögnum, eru dulkóðaðar í gagnagrunni með 256 bita dulkóðun. Öll samskipti milli skjólstæðings og sérfræðings innan Köru eru dulkóðuð með SSL/TLS skírteini.

Tilgangur og heimild til vinnslu persónuupplýsinga

Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga og heimildir til vinnslu fyrrnefndra gagna er eftirfarandi:

  • Vinnsla á upplýsingum um aðgangsorð og netfang eru nauðsynlegar til að beina skjólstæðingum rétt aðgengi að sérfræðing, geta haft samband við viðkomandi, sent út reikninga eða fylgt eftir meðferð. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.
  • Vinnsla á heilsuupplýsingum (sjúkraskrá) er nauðsynleg til að skrá niður upplýsingar sem snúa að meðferðinni og framgangi meðferðar. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða. Einnig veitendum heilbrigðisþjónustu skylt að halda sjúkraskrá og því er vinnsla nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á þeim sem ákveður vinnsluna (ábyrgðaraðila).
  • Vinnsla á greiðsluupplýsingum er nauðsynleg til að skjólstæðingar geti greitt fyrir þjónustu Endurnæring ehf ef og þegar við á. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.